Dalvík
Ærslabelgurinn við Dalvíkurskóla, staðsettur á nýlegu og flottu leiksvæði skólans.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur
Sundlaugin Akureyri
Tveir stórir belgir hlið við hlið í sundlaugagarði Akureyrar. Eini staðurinn á landinu þar sem hægt er að hoppa á milli ærslabelgja og því heldur betur ástæða til að gera sér ferð þangað.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur
Flateyri
Ærslabelgur á leikvelli í göngufæri við tjaldsvæðið. Við hann er skjólveggur með palli svo hægt er að sóla sig milli hoppa.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur
Kópasker
Ærslabelgurinn er staðsettur við skjálftasetrið, passið ykkur á jarðhræringum meðan á hoppi stendur.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur
Hjalteyri
Ærslabelgur sem er auðsjáanlegur þegar fólk rennir á eyrina. Hann er á opnu svæði þar sem er góð aðstaða til að fá sér nesti, eða skreppa yfir á Eyrina veitingarstað.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur
Hrísey
Fyrsti áfangastaður þegar komið er úr ferjunni á eyjuna, það er hefð fyrir því að teygja úr sér með hoppi á ærslabelginum
Stærð
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur
Hvolsvöllur
Ærslabelgurinn er við félagsheimilið á opnu svæði í miðbæ Hvolsvallar. Nóg af bílastæðum og stutt í alla þjónustu.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur
Akranes-Akraneshöll
Ærslabelgur á æðislegum leikvelli bakvið Akraneshöll, Stutt að fara í Guðlaug náttúrulaug frá belginum.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur
Kjarnaskógur
Fjölbreytt útivistar- og afþreyingarsvæði sem skortir að sjálfsögðu ekki einn fjörugan ærslabelg. Kringum hann má líka finna úti borðtennisborð, strandblak og bráðlega minigolfvöll.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur
Þelamörk
Frábært hoppstopp við þjóðvegin á leikvelli Þelamerkurskóla, sparkvöllur á svæðinu og stutt til Þelamerkur sundlaugar frá belginum.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur