Ólafsfjörður

Ærslabelgurinn er neðan við sundlaugina á Ólafsfirði, þið finnið hann þegar þið sjáið skíðastökk brautina, frábær sumaræfing fyrir skíðafólk til að halda stökkvöðvunum í þjálfun.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur
Vaglaskógur

Ærslabelgurinn sér til að þess á þessu nesi sé mesta stuðið! Hann er á Hróarstaðanesi neðra í Vaglaskógi ásamt fallegum sandkassa, fyrir utan það að vera í fallegum og skemmtilegum skógi.
Stærð:
7,0 x 6,25m (43fm) Ærslabelgur
Húsafell

Ærslabelgur á skjólgóðum leikvelli við golfvöllinn og sundlaugina á Húsafelli.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur
Dalvík

Ærslabelgurinn við Dalvíkurskóla, staðsettur á nýlegu og flottu leiksvæði skólans.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur
Sundlaugin Akureyri

Tveir stórir belgir hlið við hlið í sundlaugagarði Akureyrar. Eini staðurinn á landinu þar sem hægt er að hoppa á milli ærslabelgja og því heldur betur ástæða til að gera sér ferð þangað.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur
Flateyri

Ærslabelgur á leikvelli í göngufæri við tjaldsvæðið. Við hann er skjólveggur með palli svo hægt er að sóla sig milli hoppa.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur
Kópasker

Ærslabelgurinn er staðsettur við skjálftasetrið, passið ykkur á jarðhræringum meðan á hoppi stendur.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur
Hjalteyri

Ærslabelgur sem er auðsjáanlegur þegar fólk rennir á eyrina. Hann er á opnu svæði þar sem er góð aðstaða til að fá sér nesti, eða skreppa yfir á Eyrina veitingarstað.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur
Hrísey

Fyrsti áfangastaður þegar komið er úr ferjunni á eyjuna, það er hefð fyrir því að teygja úr sér með hoppi á ærslabelginum
Stærð
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur
Hvolsvöllur

Ærslabelgurinn er við félagsheimilið á opnu svæði í miðbæ Hvolsvallar. Nóg af bílastæðum og stutt í alla þjónustu.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur