Hofsós

Stór belgur staðsettur við grunnskólan á Hofsósi. Stutt frá tjaldsvæðinu og þar má líka finna aparólu og sparkvöll.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur
Illugastaðir

Ærslabelgur í orlofshúsahverfi með allskonar fjöri í nokkra metra radíus kringum sig, veglegur leikvöllur, frisbígolf og sund.
Stærð:
8,7 x 9,0m (78fm) Ærslabelgur
Höfn

Skemmtilegur belgur á besta stað hjá sundlauginni í Höfn. Getur fylgt regnboga göngustígnum og sérð þá belginn.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur
Varmahlíð

Þessi ærslabelgur er reynslu stuðbolti sem hefur séð mikið fjör enda vel staðsettur við tjaldsvæðið á Varmahlíð, stutt í fótboltavöll og einnig sund.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur
Vestmannaeyjar

Ærslabelgur í fallegu umhverfi á Stakkagerðistúni. Fleiri leiktæki á svæðinu og stutt rölt í bæinn.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur
Sandgerði

Stór ærslabelgur staðsettur við leikvöll á opnu og fallegu svæði bakvið Sandgerðisskóla.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur
Súðavík

Ærslabelgur á opnu svæði stuttu frá íþróttahúsi og Melrakkasetrinu.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101) Ærslabelgur
Húsavík

Ærslabelgurinn er við leikvöllinn hjá Borgarhólsskóla með öllu því helsta sem þarf fyrir góða leikstund.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur
Bíldudalur

Þessi ærslabelgur býður upp á sjóhopp, eða hopp við höfnina og sjóinn. Nálægt
sundlauginni og tjaldsvæðinu.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur
Djúpivogur

Heimsóknin á Djúpavog byrjar vel því þegar þú rennir inn í bæinn, þá tekur á móti þér þessi æðislegi ærslabelgur sem er staðsettur á íþróttavellinum Neistavelli.
Stærð:
11,2 x 9,0m (101fm) Ærslabelgur