Reglur

Ærslabelgur er leiktæki sem ætlað er til að hoppa, leika og skemmta sér. Til að tryggja öryggi þurfa þó allir að fylgja settum reglum. Markmið þeirra er að koma í veg fyrir slys svo allir fari heim glaðir og ánægðir.

Við ærslabelgina eru skilti sem sýna þær reglur sem gilda. Við biðjum ykkur að virða þær og sýna öðrum sem eru að hoppa tillitssemi og virðingu.

 

Ærslabelgirnir okkar eru TUV vottaðir

Gæðavottun

Ærslabelgir eru gerðir úr sterkum dúk sem er 910 gr./m2 og sérstaklega meðhöndlaður til að geta varist UV geislum og bleytu. Ærslabelgirnir eru prufaðir eftir EN71-3 og vottaðir af TUV SUD sem er gæðastimpill fyrir Ærslabelgina. Blaabjerg er eini framleiðandi Ærslabelgja í Evrópu með TUV SUD vottun. Dúkurinn í Ærslabelgjunum er í ábyrgð í 5 ár en áætlaður líftími hans áður en það þarf að skipta um hann er á bilinu 8-10 ár.

Helstu stærðir af Ærslabelgjum

Ærslabelgur 5,0 x 5,0m

TH120 / 6,25 x 7,0 metrar / 43 m2 / 9 börn

6,25x7,00m 44fm Ærslabelgur Hreinir Garðar-1

Ærslabelgur 6,25 x 7,0m

TH120 / 6,25 x 7,0 metrar / 43 m2 / 9 börn

8,7x9,0m 78fm Ærslabelgur Hreinir Garðar-1

Ærslabelgur 8,7 x 9,0m

TH121 / 8,7 x 9,0 metrar / 78 m2 / 16 börn

11,2x9,0m 101fm Ærslabelgur Hreinir Garðar-1

Ærslabelgur 11,2 x 9,0m ​

TH122 / 11,2 x 9,0 metrar / 101 m2 / 20 börn

13,65x10,0m 136fm Ærslabelgur Hreinir Garðar-1

Ærslabelgur 13,65 x 10,0m

TH123 / 13,65 x 10,0 metrar / 136 m2 / 27 börn

16,1x10,0m 161fm Ærslabelgur Hreinir Garðar-1

Ærslabelgur 16,1 x 10,0m

TH123 / 16,1 x 10,0 metrar / 161 m2 / 32 börn

Ærslabelgur Q8

TH208 / þvermál 8m / 50 m2 / 10 börn

Q12 Hringlaga Ærslabelgur Hreinir Garðar-1

Ærslabelgur Q12

TH212 / þvermál 12m / 113 m2 / 22 börn

Ærslabelgur Q16

TH216 / þvermál 16m / 201 m2 / 40 börn

Um Ærslabelgina

Ærslabelgir eru framleiddir hjá Blaabjerg í Danmörku, sem var stofnað 1983. Síðan þá hafa mörg þúsund Ærslabelgir verið settir upp, m.a. í Danmörku, Englandi , Svíþjóð, Hollandi, Þýskalandi, Íslandi  og fleiri stöðum.

2005 fór Einar Karlsson í ferðalag til Danmerkur með fjölskyldunni. Þar rákust þau á Ærslabelg og börnin voru auðvitað æst í að prófa. Einar sá strax að þetta væri algjör snilld sem krakkarnir elskuðu svo hann ákvað að hafa samband við framleiðandann og falast eftir því að fá að flytja þetta inn til Íslands. Það gekk og Einar fékk umboðið. Árið 2006 setti hann svo upp fyrsta Ærslabelginn og síðan þá hefur hann selt og sett upp fleiri en 100 Ærslabelgi á Íslandi.

2021 tóku Hreinir Garðar við rekstri og sölu á Ærslabelgjunum af Einari. Hreinir Garðar stefna á að halda áfram því frábæra starfi sem Einar hefur sinnt fram að þessu og reyna að gera Ærslabelgina enn aðgengilegri fyrir alla aldurshópa.